Persónuvernd

Persónuverndarstefna – Gulur september

Persónuverndarstefna þessi er sett fram til að útskýra hvaða persónuupplýsingar er unnið með í tengslum við vefsíðuna Guluseptember.is

Hver ber ábyrgð?
Félagið Lífsbrú, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á þessari vefsíðu

Hvaða upplýsingum söfnum við?
Almennt eru engar persónuupplýsingar unnar í tengslum við verkefnið Gulur september. Ef þú verslar í vefverslun okkar, til að styðja verkefnið þurfum við að vinna eftirfarandi upplýsingar um þig: 

  • Nafn
  • Heimilisfang
  • Netfang
  • Símanúmer

Við geymum ekki greiðsluupplýsingar. Þær fara beint í gegnum Teya, sem sér um greiðsluvinnsluna og við fáum aðeins staðfestingu á því að greiðsla hafi verið framkvæmd.

Vefkökur
Við notum aðeins nauðsynlegar kökur sem láta síðuna virka, vefkökum er eytt þegar þú yfirgefur síðuna. Í vefverslun eru þær þó varðveittar í skamman tíma, til að þú tapir ekki vörum úr körfunni þinni ef þú nærð ekki að klára pöntunina þína. 

Tilgangur
Við notum upplýsingarnar þínar eingöngu til að geta afgreitt pöntun þína í vefverslun.

Öryggi
Gögn eru geymd á öruggan hátt.

  • Aðeins þeir sem þurfa að vinna með gögnin hafa aðgang.
  • Við deilum ekki upplýsingunum með þriðja aðila nema lög krefjist þess.

Hversu lengi?

  • Upplýsingar sem verða til við kaup á vörum eru varðveittar í samræmi við bókhaldslög (yfirleitt 7 ár).
  • Öðrum gögnum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.

 Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við varðveitum um þig, fá afrit af þeim og láta leiðrétta rangar upplýsingar. Þú getur einnig á rétt á því að upplýsingum um þig sé eytt, takmarka vinnslu upplýsinga um þig og fá persónuupplýsingar um þig fluttar, en þessi réttindi eru takmörkuð m.a. af öðrum lögum. Þú átt rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga um þig og til að leggja fram kvörtun til Persónuverndar, ef þú telur að eitthvað við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur standist ekki persónuverndarlög. 

Hafir þú spurningar um vinnslu persónuupplýsinga á vefsíðunni, eða ef þú vilt nýta réttindi þín getur þú haft samband með því að senda tölvupóst á lifsbru@landlaeknir.is

Breytingar á stefnunni
Við áskiljum okkur rétt til að gera breytingar á persónuverndarstefnu þessari. Ef breytingar verða, uppfærum við textann hér á heimasíðunni:

Síðast uppfært: 1. September 2025