Samstarf
Að Gulum september standa fulltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Til margra ára hefur verið samvinna milli stofnana og félagasamtaka um að skipuleggja viðburði t.d fræðslu, málþing, minningarstundir eða annað í tengslum við árlegan Alþjóðadag sjálfsvígsforvarna þann 10. september. Einnig hefur verið hópur sem hefur staðið á bak við viðburð sem haldinn er á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum þann 10. október.
Árið 2023 ákváð undirbúningshópurinn sem stendur að skipulagningunni að hrinda af stað vitundarvakningunni Gulur september. Tímabilið 1. september – 10. október var valið með það að markmiði að fella inn í það þessa tvo alþjóðadaga. Jafnframt var ákveðið að nota gula litinn til að vekja athygli á málaflokknum sem er geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.
Á hverju ári velur undirbúningshópurinn ákveðið þema eða áherslur með skilaboðum sínum. Þegar það er valið er m.a. horft er til alþjóðasamtakanna IASP (International Association for Suicide Prevention) en frá þeim koma skilaboð á hverju ári.
Þeir sem standa að vitundarvakningunni vilja vinna að henni í breiðu samstarfi og hefur fengið til liðs við sig ráðgefandi sérfræðihóp notenda. Vef- og kerfisstjórar þeirra stofnana og félagasamtaka sem standa að Gulum september skipa líka mikilvægan vinnuhóp í tengslum við árvekniátakið og bera ábyrgð á fréttum og miðlun viðburða.

Allir geta tekið þátt í vitundarvakningunni, taka þátt. Hugmyndafræði átaksins gengur út á að virkja sem flesta í samfélaginu. Kallað er eftir því að stofnanir, félagasamtök, skólar, vinnustaðir, skipulagt tómstundastarf og aðrir hópar séu með viðburð í Gulum september sem tengist geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Þemað í Gulum september frá upphafi
Frá upphafi hefur Gulur september vaxið jafnt og þétt sem vitundarvakning um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Á hverju ári hefur sjónum verið beint að ólíkum hópum og leiðum til að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri sem víðast í samfélaginu. Grunnhugmyndafræði átaksins gengur út á að virkja samfélagið og hópa innan þess til þátttöku með sínum hætti. Áhersla er á samstarf en þannig verður slagkraftur skilaboðanna meiri.
Árið 2023 var lögð áhersla á að kynna hugmyndafræði átaksins fyrir baklandi skipulagsaðila. Einnig var unnið að því að koma vitundarvakningunni á framfæri við vinnustaði og á bókasöfnum. Sérstök áhersla var á að virkja verslanir og verslunarmiðstöðvar en opnunarviðburðurinn var haldinn í Kringlunni.
Árið 2024 beindist athyglin sérstaklega að ungmennum og því að koma skilaboðum Guls september inn í skólaumhverfið. Hugmyndablöð voru unnin af skipulagshópnum þar sem settar voru fram tillögur að því hvernig öll skólastig og vinnustaðir gætu tekið virkan þátt. Þetta ár tóku fleiri samfélagshópar þátt, meðal annars bakarí og ýmsir líkamsræktar- og hreyfihópar. Prjónasamfélagið var einnig hvatt til að taka þátt sem gerði átakið sýnilegt á fjölbreyttan og skapandi hátt. Opnunarviðburðurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Árið 2025 var sérstök áhersla lögð á eldri borgara . Markmiðið var að beina sjónum að mikilvægi tengsla, samtals og stuðnings á öllum æviskeiðum og minna á að geðrækt og sjálfsvígsforvarnir eiga erindi við okkur öll. Opnunarviðburðurinn var haldinn í samfélagshúsinu á Vitatorgi að viðstöddu fjölmenni þar sem stór hluti gesta var eldri borgarar.
Árið 2026 verður áhersla á ungmenni og þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir. Í ár teygjum við okkur líka til kórasamfélagsins en sýnt hefur verið fram á jákvæð áhrif kórastarfs á heilsu og vellíðan. Jafnframt verður horft til skipulagðs tómstundastarfs sem mikilvægs vettvangs fyrir geðrækt, tengsl og forvarnir. Opnunarviðburðurinn í ár verður haldinn með pompi og prakt í Sólinni, í Háskólanum í Reykjavík.
Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar verkefnisins hjálpa til við að breiða út boðskapinn um mikilvægi geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna. Þeir hafa lagt til viðburði, hugmyndir, aðföng eða krafta í dagskrána. Hér eru einnig aðilar sem hafa styrkt verkefnið og lagt sig fram um að breiða út boðskapinn með gulum lit og gulum skilaboðum.


























