Skilmálar

Skilmálar vefverslunar – Gulur september

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í vefverslun á heimasíðunni Gulurseptember.is sem rekin er af Lífsbrú, kt. 501023-0780. Allur ágóði af vörusölu fer til styrktar geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.  

Verð á vörum
Öll verð í vefverslun eru birt með virðisaukaskatti. Verð á vefnum getur breyst án fyrirvara.
Verð og lagerstaða er birt með fyrirvara um myndabrengl og/eða villur og áskilur Lífsbrú sér rétt til að ljúka ekki viðskiptunum hafi rangt verð eða lagerstaða verið gefið upp. Ef vara reynist ekki til við afgreiðslu er haft samband við viðskiptavin og honum boðin endurgreiðsla eða bíða eftir nýrri sendingu.

Sendingarmöguleikar
Íslandspóstur sér um sendingar á vörum sem keyptar eru í vefverslun til styrktar átaksins Gulur september. Eftir að vara er afhent póstinum ber Lífsbrú ekki ábyrgð á vörunni.
Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum gilda um sendingar eftir að varan hefur verið afhent póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins.

Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.

Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 2–3 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.

Skilafrestur og endurgreiðsla
Skilafrestur á vöru er 30 dagar. Nauðsynlegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum og óskemmd. Kvittun þarf að fylgja með. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð greiðir Lífsbrú fyrir endursendingu vörunnar.

Annað
Lífsbrú áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í vefverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá Sorgarmiðstöð eða birgja. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og verða má.

Öryggi
Lífsbrú varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í vefverslun. Þegar komið er að því að gefa upp kortaupplýsingar og ganga frá greiðslu er viðskiptavinur fluttur yfir á örugga greiðslusíðu hjá Teya. Allar greiðslur eru framkvæmdar í vottuðu umhverfi sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðal.
Vefurinn Gulurseptember.is notast við SSL skírteini sem tryggir öryggi í gagnaflutningi og samskiptum. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál.

Lög og varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.