Hvernig er hægt að taka þátt?
Með því að;
- Taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem er frá 1. september – 10. október.
- Hjálpast að við að vekja athygli á Gulum september og því sem hann stendur fyrir.
- Klæðast gulu, skreyta með gulu eða bjóða upp á gular veitingar.
- Taka myndir af gulri stemningu, mynd af sjálfum sér, vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum, fyrirbærum eða vörum.
- Taka þátt í gula deginum 10. september.
- Gera gulum vörum hátt undir höfði í verslunum, stilla þeim upp og jafnvel veita afslátt af gulum vörum.
- Prjóna Litlu gulu peysuna til styrktar sjálfsvígsforvörnum, sjá uppskrift hér.
- Prjóna og hekla úr gulu garni.
- Minna á semikommuna (;) sem er kennimerkið fyrir Gulan september en táknið er notað víða um heim til að sýna samstöðu með geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Það vísar til framhalds, seiglu og vonar.
- Lýsa upp byggingar og/eða glugga í gulu.
- Hvetja aðra til að taka þátt og dreifa boðskapnum áfram, t.d. til stjórnenda, samstarfsfólks, starfsmannafélaga og til annarra sem vilja leggja geðrækt og sjálfsvígsforvörnum lið.
- Deila myndum og upptökum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #Gulurseptember og merkja @gulurseptember.
- Stofna til viðburðar og koma honum í viðburðardagatalið í Gulum september með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Staður, stund (dags og tími), nafn viðburðar, lýsing á viðburði og ábyrgðaraðili (félag, stofnun, vinnustaður). Ef við á hlekkur á nánari upplýsingar um viðburð.
Heilsueflandi hugmyndablöð
→ Sjá nánar um heilsueflandi
