Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Gulur Zumba tími

september 10, 2025 @ 18:00 - 19:00
Power Move Studio tekur þátt í gula deginum 10. september 💛
Markmið með gulum september er að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna og sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.
Í tilefni dagsins verður FRÍTT INN í Zumba tíma dagsins, miðvikudaginn 10. september kl. 18 í íþróttasal Menntaskólans við Hamrahlíð.
Við mælum með að taka frá pláss með því að skrá sig í tímann
Við hvetjum ykkur til að klæðast gulu – nú eða skreyta ykkur með einhverju gulu💛
Endilega deilið að vild og bjóðið ykkar fólki í gult Zumba partý!
Við hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu í ógleymanlegri gulri stemningu 💛

Hlekkur á viðburðinn á Facebook