Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Gul geðræktarganga – Heiðmörk
Gulur september er mánuður helgaður geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Af því tilefni verður í samstarfi við Vesen og vergang boðið upp á gula geðræktargöngu til að auka meðvitund samfélagsins um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Gangan verður á Heiðmerkursvæðinu, en nánari staðsetning og upplýsingar um bílastæði og þess háttar koma síðar. Einnig munum við setja inn ráðleggingar um fatnað deginum áður, þegar veðurspá er orðin nokkuð áreiðanleg.
Öll eru hvött til að mæta í einhverju gulu í tilefni dagsins. Við munum taka stutta nestispásu svo endilega takið með ykkur eitthvað að drekka og orkuríkan bita.
Hlekkur Facebook viðburð göngunnar hér:
https://www.facebook.com/share/19ktjpy8mi/
