Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Opnunarviðburður í Háskólanum í Reykjavík

september 1 @ 14:00 - 16:00

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

Dagskrá:

  • Fundarstjóri setur viðburðinn
  • Ávarp aðstoðarrektors Háskólans í Reykjavík
  • Ávarp heilbrigðisráðherra
  • Ávarp forseta stúdentafélags HR
  • Viðurkenning Lífsbrúar til einstaklings og liðsheildar fyrir mikilsvert framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi
  • Hugvekja Eddu Björgvinsdóttur
  • Tónlistaratriði – KASI
  • Fundarstjóri lokar skipulagðri dagskrá

Fundarstjóri: Eva Skarpaas, verkefnastjóri Guls september hjá Embætti landlæknis

Að formlegri dagskrá lokinni mun fara fram markaðstorg skipulags- og samstarfsaðila í Gulum september í Sólinni í HR.

Boðið verður upp á gular veitingar og eru öll velkomin!

Details

  • Date: september 1
  • Time:
    14:00 - 16:00

Venue