Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Vinir Zippýs og kennsla félags- og tilfinningafærni í skólum

september 11 @ 12:30 - 13:00

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization; WHO) hefur lagt áherslu á að efla seiglu og félags- og tilfinningafærni barna og ungmenna þegar kemur að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Í skólakerfinu gefst tækifæri til að ná til allra barna og ungmenna í samfélaginu og sýna rannsóknir að með markvissri kennslu í félags- og tilfinningafærni má hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan, samskipti, skólabrag og námsárangur. Vinir Zippýs er námsefni fyrir yngsta stig grunnskóla sem miðar að því að efla bjargráð, seiglu og samskiptafærni. Námsefnið hefur verið kennt í íslenskum skólum í tæp 20 ár og verið á meðal þess sem skólar nýta helst til kennslu félags- og tilfinningafærni á yngsta stigi. Í þessu erindi verður fjallað um gildi þess að kenna félags- og tilfinningafærni í skólum ásamt kynningu á námsefninu Vini Zippýs sem hefur nýlega verið uppfært og endurútgefið.

Hér er hlekkur á Teams viðburðinn!

Details

  • Date: september 11
  • Time:
    12:30 - 13:00

Organizer

  • Embætti landlæknis

Venue

  • Teams