Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
1799 Himnastigar

Himnastiginn í Kópavogsdalnum, hittumst neðst í stiganum við Digranesveg 79, 200 Kópavogi
Við ætlum að vekja athygli á nýju númeri hjálparsíma Píeta 1799 á táknrænan hátt með því að ferja 1799 steina upp himnastigann saman.
Sýnum samstöðu og gefum von með því að mæta og hjálpast að. Við þurfum ekki að bera þungar byrðar ein, það er hjálp að fá.
Nánari upplýsingar fljótlega.
Öll hjartanlega velkomin.
Hlekkur á viðburð
Svar: https://fb.me/e/bZPSGnwL0
Tengiliður ábyrgðaraðila:
Dóra Guðlaug Árnadóttir
dora@pieta.is
