Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Loftlagsmál og loftlagskvíði

september 29, 2025 @ 17:00 - 18:00

Viðburður á vegum Landverndar

Ragnhildur Katla( BSc í sálfræði frá HÍ 2022) er umsjónaraðili en viðburðurinn er til þess að efla samtal og samstöðu.

Finnið þið fyrir vanmáttarkennd eða kvíða þegar þið hugsið um loftslagsmálin? Þið eruð ekki ein.

Við lifum sannarlega á óvissutímum en með opinni umræðu og aukinni meðvitund getum við skapað rými fyrir von, aðgerðir og innri styrk. Mánudaginn 29. september bjóðum við ykkur á viðburð þar sem við getum deilt hugsunum og hugmyndum, hlýðum á erindi og lítum inn á við. Opið öllum.

Þessi viðburður snýst bæði um vanmátt og von. Saman höfum við áhrif.

Ragnhildur Katla BSc í sálfræði og upplýsingafulltrúi Landverndar leiðir umræður og æfingar. En sérstakur gestur er Sverrir Norland, rithöfundur, útgefandi, hugmyndasmiður og fjölmiðlamaður. Hann hefur á síðustu árum flutt mörg hundruð fyrirlestra í skólum, fyrirtækjum og stofnunum, bæði út frá bókum sínum og eins um önnur efni spanna allt frá karlmennsku í samtímanum, loftslagsbreytingum, tækni, sköpunargáfu, hatursorðræðu og gervigreind

Á viðburðinum verður samtal, æfingar og erindi.

Erindi þetta er byggt á samnefndri bók Sverris sem kom út árið 2021

Stríð og kliður: Hvað verður um ímyndunaraflið?

Details

  • Date: september 29, 2025
  • Time:
    17:00 - 18:00

Venue

  • Loft Hostel
  • Bankastræti 7
    Reykjavík,101Iceland
    + Google Map