Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Viðbrögð á vettvangi sjálfsvígs – Lokað erindi fyrir viðbragðsaðila í Reykjavík

september 5, 2025 @ 10:00 - 12:00

Andrea Walraven-Thissen heldur fræðslufyrirlestur og er með þjálfun fyrir viðbragðsaðila, lögreglu og sjúkraflutningamenn.

Efni: 

  • Fyrirlestur: Viðbrögð á vettvangi í kjölfar sjálfsvígs 1 klst.
  • Þjálfun: Tækni til að ná fólki út úr sjokki (iCOVER; Rapid responce to acute stress reaction) – 1 klst.

Um fyrirlesarann

Andrea Walraven-Thissen hefur bakgrunn í geðhjúkrun og hefur starfað sem viðbragðsaðili í yfir 25 ár. Hún er sérfræðingur í atvikastjórnun (incident management) í hamförum, slysum, stórslysum og hryðjuverkaárásum ásamt stuðningi í kjölfar sjálfsvíga (postvention). Hún kemur að stjórnun og skipulagningu á vettvangi sem fyrsti viðbragðsaðili og er sérfræðingur í sálfélagslegu mati/forgangsröðun (triage). Hún sérhæfir sig í gagnreyndum rannsóknum á fyrstu viðbrögðum og sálrænum áhrifum þeirra. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu og leiðbeinir stjórnvöldum, alþjóðasamtökum og viðbragðsteymum fyrstu viðbrögð við vá byggt á reynslu og rannsóknum. Hún  hefur haldið vinnustofur og fyrirlestra víða um heim og er höfundur bókarinnar Responding After Suicide: A Practical Guide to Immediate Postvention. Andrea er hollensk en býr í Þýskalandi.

Fræðslan verður á ensku

Að fyrirlestrinum stendur Lífsbrú miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis.

Details

  • Date: september 5, 2025
  • Time:
    10:00 - 12:00