Lífsbrú – 66 Norður húfa

7.900 kr.

Húfan er úr merino ullarblöndu og því einstaklega hlý og mjúk.

Á húfunni er kennimerki Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna og kennimerki 66 Norður. Þau eru sett saman í eitt fallegt merki.

Merkið er gult því guli liturinn er víða um heim notaður sem litur sjálfsvígsforvarna.

Hægt er að fá húfuna í tveimur litum, gula og svarta.

Húfan er til sölu á heimasíðu Guls september og í völdum verslunum 66 Norður.

Ágóði af sölu húfunnar rennur til styrktar sjálfsvígsforvörnum í samvinnuverkefninu Gulur september.

Húfan verður til sölu í september og kemur í takmörkuðu upplagi.