Litla gula peysan – uppskrift

Edda Lilja Guðmundsdóttir hannaði Litlu gulu peysuna og gaf Lífsbrú uppskriftina. Hægt er að nálgast uppskriftina hér. Litla gula peysan skartar kennimerki Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna og hægt er að nota peysuna, t.d. á lyklakippu, sem hálsmen eða töskuskraut.

Það er von þeirra sem standa að Litlu gulu peysunni að það verði til hópur fólks sem prjónar eftir uppskrift Eddu Lilju, ýmist einir eða með öðrum. Á þennan hátt nýtist styrkur og samvinna prjónafólks málaflokknum. Reglulega verða haldnir prjónahittingar sem verður vonandi líka til þess að tengja saman fólk og skapa góðar prjónasamverustundir.

Hægt að skila inn prjónuðum peysum á prjónahittingum eða í prjónabúðina Maró, Hlíðarfót 11, 102 Reykjavík, hvenær sem er á opnunartíma verslunarinnar.