Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Garngraff á Klambratúni

Setjum upp sameiginlegt garngraff í Gulum september.
Öll velkomin að koma og bæta við verkið sem stækkar áfram. Byrjum þennan dag en vonandi fær verkið að lifa áfram
Trélundurinn er á fold braut 3 á Klambratúni sem er Rauðarárstígs megin við strandblakvöllinn
Í fyrra sköpuðum við saman verk við Rauðavatn og voru mörg sem komu með sitt handverk og bættu við.
#fyrirRósu
