Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Málþing – sjálfsvígsforvarnir

Málþingið er haldið á vegum Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis og Landspítala. Málþingið er ætlað heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem áhuga hafa á sjálfsvígsforvörnum.
Dagskrá:
13:00–14:00 – Sjálfsvíg skjólstæðings: Áhrif á fagfólk og stuðningur og viðbrögð í kjölfar sjálfsvígs. Dr. Regina Seibl starfar sem sérfræðingur hjá Pro Mente Tirol og PSZ Tirol (miðstöð fyrir bráða- og áfallaþjónustu) í Innsbruck í Austurríki. Hún sér m.a um kennslu í stuðningi eftir sjálfsvíg og geðrænni skyndihjálp (Mental Health First Aid). Hún á sæti í sérfræðiráði SUPRA (Suicide Prevention Austria) og leiðir vinnuhóp samtakanna um stuðning í kjölfar sjálfsvígs
14:00-14:15 – Viðbragðsáætlun fyrir sjúklinga í sjálfsvígshættu: Þjálfun starfsmanna og innleiðing í geðþjónustunni. Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Landspítala og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
14:15-14:30 – Díalektísk atferlismeðferð. Kristín Inga Grímsdóttir sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun
14:30-14:50 – Hlé
14:50–15:05 – Að lifa af er aðeins byrjunin. Sr. Sunna Dóra Möller, prestur í Langholtskirkju
15:05–15:20 – Sjálfsvígsforvarnir á Íslandi: Hvar stöndum við og hvert stefnum við? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir verkefnastjóri hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis
Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að ská sig hér: Málþing um sjálfsvígsforvarnir
Málþingið verður tekið upp og hlekkur gerður aðgengilegur eftir málþingið.
