Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við.

Fyrsti fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn 25. september kl. 11:30–13:00 og fjallar um sjálfsvíg á Íslandi, stöðuna í dag og leiðir til forvarna. Fundurinn verður í Öskju í Vatnsmýri, stofu N-132.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Fundarstjóri: Eva Skarpaas, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
Hlekkur á upptöku frá fundinum: https://vimeo.com/event/6194203?fl=so&fe=fs
Dagskrá
- Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands – Frá sjálfsvígshugsunum til forvarna: Hvað vitum við og hvað vantar okkur að vita?
- Patrekur Örn Gestsson, rannsóknarmaður hjá Miðstöð í lýðheilsuvísindum – Tengsl áfalla í æsku við sjálfsvígshegðun kvenna
- Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri hjá Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embættis landlæknis – Tölfræði og aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi
- Steinn Thoroddsen Halldórsson geðlækni og yfirlæknir á geðgjörgæsludeild Landspítala – Mat á sjálfsvígshættu og algeng nálgun eftir sjálfsvígstilraunir
- Anna Guðný Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjálp48 hjá Sorgarmiðstöðinni – Stuðningur við aðstandendur eftir sjálfsvíg
- Pallborðsumræður í lokin
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Hér er hlekkur á Facebook viðburð!
Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða mikla vanlíðan er hægt að leita aðstoðar í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða á netspjallinu 1717.is allan sólarhringinn. Einnig er hægt að hafa samband við Píeta samtökin í gegnum hjálparsíma 1799.
