Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Leiðin að ljósinu

september 28 @ 17:00 - september 29 @ 17:00

24 TÍMA ÁSKORUN FYRIR PÍETA SAMTÖKIN 💛

Mánudaginn 28. september kl. 17:00 ætlar Guðmundur Magnússon að leggja af stað í sína stærstu áskorun hingað til. Guðmundur hefur gengið daglega upp í Garðskagavita í næstum 2 ár en ætlar nú að ganga upp og niður Garðskagavita samfleytt í heilan sólarhring til styrktar Píeta samtökunum og baráttunni gegn sjálfsvígum.

Gangan stendur yfir til þriðjudagsins 29. september kl. 17:00.

Í kjölfarið verður haldin Gul messa í Útskálakirkju kl. 17:30 á þriðjudeginum.

Dagskrá messunnar verður auglýst sérstaklega.

Hlekkur á viðburð: https://www.facebook.com/groups/616880203997279

Tengiliður ábyrgðaraðila: Ragnhildur Ásgeirsdóttir

Details

  • Start: september 28 @ 17:00
  • End: september 29 @ 17:00

Organizer

  • Píeta samtökin og Guðmundur Magnússon
  • Email ragnhildur@pieta.is