Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Opnunarviðburður 1.september

Dagskrá
– Ávarp borgarstjóra Reykjavíkur, Heiða Björg Hilmisdóttir.
-Ávarp landlæknis: María Heimisdóttir.
– Kynning á nýrri aðgerðaáætlun um fækkun sjálfsvíga á Íslandi og afhending viðurkenningar Lífsbrúar: Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri Lífsbrúar – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis.
– Tónlistaratriði: KK
– Gleðin við að eldast: Birna Róbertsdóttir, forstöðumaður Borga, félags- og menningarmiðstöðvar Spönginni.
– Samtal við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands.
Fundarstjóri: Anna Margrét Bjarnadóttir, verkefnastjóri Guls september hjá Embætti landlæknis
Boðið verður upp á gular veitingar
Allir velkomnir
Hlekkur á FB viðburð
