Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Dons Donuts – Gul Escobarbomba

Escobarbomban verður gul!
Gulur september er mikilvægt og verðugt átak sem okkur hefur lengi langað að leggja lið á þann hátt sem við getum. Við munum seint fara að safna áheitum og hlaupa maraþon enn þetta getum við gert 💛
Því miður falla alltof margir fyrir eigin hendi og eiga flestir einhvern sér nákominn sem fór of snemma. Við eigum einn slíkann sem kvaddi okkur fyrir rétt tæpu ári síðan. Hans „go to“ kleinuhringir voru escobarbomban og fannst okkur þess vegna við hæfi að dagana 10-20 september verður escobarbomban framreidd með gulri vanillusósu, EN öll sala af escobarbombunni þessa daga mun renna í styrktarsjóð Guls september.
Athugið getum ekki látið þetta gilda í wolt svo kíkið við í Núpalind 1 🙂
