Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Heilsueflandi leikskóli

september 23 @ 13:00 - 13:30

Kynning á Heilsueflandi leikskóla.

Heilsueflandi leikskóli er nálgun sem embætti landlæknis býður leikskólum landsins að taka þátt í og vinna með markvissum hætti að heilsueflingu. Þetta er meðal annars gert með aðgangi að rafrænu kerfi þar sem leikskólar geta haldið utan um eigin stöðu og framgang með hjálp gátlista og ýmis stuðningsefnis. Unnið er eftir heildarskólanálgun með heilsu og vellíðan barna og starfsfólks að leiðarljósi.

Hlekkur á Teams: https://teams.microsoft.com/meet/352348032387840?p=dLSZmyzhQyPmFfjsS5

 

Details

  • Date: september 23
  • Time:
    13:00 - 13:30

Organizer

  • Embætti landlæknis

Venue

  • Teams