Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Hljóðferðalag

september 9 @ 19:30 - 21:00

Í tilfefni af Gulum september bjóðum við þér í hlýja og nærandi tónheilun  sem er sérstaklega ætluð þeim sem hafa misst ástvin.

Sorgin fylgir engum reglum og hefur engan tímaramma. Hún getur verið þung, hljóðlát, óvænt eða fylgt okkur í öldum. Stundum er það sem við þurfum mest á að halda ekki svör, heldur öruggt rými þar sem við megum einfaldlega vera.

Í þessari stund gefum við líkama og huga tækifæri til að hvílast. Á meðan þú liggur eða situr þægilega, umvefja mjúkir hljómar kistalskála, tíbetskra skála, gongs og annarra hljóðfæra rýmið og skapa stund kyrrðar, nærveru og mýkt. Þú þarft ekkert að kunna og ekkert að gera. Þú mátt einfaldlega koma eins og þú ert.

Í hraða dagsins gleymum við oft að hlusta, ekki aðeins á aðra heldur líka á okkur sjálf. Þessi stund er boð um að hægja á, sleppa takinu um stund og leyfa líkama og huga að hvílast í öruggu og nærandi rými.

Viðburðurinn er hluti af Gulum september, samvinnuverkefni  stofnanna og félagasamtaka sem vinna saman að  geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Markmið verkefnisins er að efla geðrækt, vekja athygli á mikilvægi sjálfsvígsforvarna og minna okkur á gildi kærleika, aðgátar og umhyggju.

Þessi viðburður er haldin í samstarfi við Minningarsjóð Ólafar Töru, sem vinnur við verkefni á sviði geðræktar, sjálfsvígsforvarna og fræðslu.

Tónheilunin er leidd af Tinnu Arnardóttur og Ingunni Rögnu Sævarsdóttur.
Vil höfum báðar gengið í gegnum djúpa sorg og vitum af eigin reynslu hversu dýrmætt það er að eiga rými þar sem maður þarf ekki að útsýra neitt. Með þeirri reynslu og djúpri virðingu fyrir sorgarferlinu viljum við skapa örugga og nærverandi stund þar sem þú færð að hvílast, anda og einfaldlega vera.

Það er með þeirri virðingu og umhyggju sem við bjóðum þér þessa stund, án væntinga og án krafna. Stundum er mesta gjöfin ekki að finna svör heldur að finna rými þar sem maður fær að vera.

Og skapa rými fyrir von, umhyggju og samtal. Með þeirri von að skapa öruggt rúmi fyrir þau sem, lifa með missi.

Þú ert hjartanlega velkomin(n), hvar sem þú ert stödd eða staddur í sorgarferðinni.

Tímalengd 70 mínútur.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.

Details

Organizer

  • Minningasjóður Ólafar Töru
  • Email arnardottir@gmail.com

Venue