Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Litla gula peysan – Samprjón til styrktar sjálfsvígsforvörnum

september 11, 2025 @ 20:00 - október 9, 2025 @ 23:30
Litla gula peysan – Samprjón á Facebook til styrktar sjálfsvígsforvörnum:
Gulur september er vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka og sjálfsvígsforvörnum og er nú haldinn í þriðja skiptið.
Þessi prjónahópur/samprjón er fyrir þá sem vilja leggja sitt af mörkum og prjóna Litlu gulu peysuna sem verður seld í september til styrktar Gulum september.
Peysan skartar kennimerki Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna og uppskriftin af henni er aðgengileg hér. Hægt er að nota peysuna, t.d. á lyklakippu eða sem hálsmen eða töskuskraut. Edda Lilja Guðmundsdóttir hannaði peysuna og gaf Gulum september uppskriftina. Prjónar sem mælt er með að mæta með eru í stærðinni 3 mm.
Í kennimerki Lífsbrúar er notað tímalaust myndmál. Semikomman stendur fyrir það að saga einstaklings er ekki lokið, það er alltaf framhald á eftir semikommu. Brúin er tákn fyrir leið yfir erfiðleika. Guli liturinn táknar ljós og von, auk þess sem hann er á heimsvísu tengdur sjálfsvígsforvörnum. Blái liturinn stendur fyrir traust og stöðugleika. Hugmyndin er að merkið vísi í ljós í myrkri, bjóði upp á stuðning og sýni að við erum öll saman í þessu, aldrei ein.
Samfélag prjónafólks á Íslandi er stórt og löng hefð fyrir prjónaskap. Í prjónaskap felst núvitund sem getur verið hjálpleg fyrir geðheilsu. Það er von þeirra sem standa að Litlu gulu peysunni að það verði til hópur fólks sem prjónar eftir uppskrift Eddu Lilju, ýmist einir eða með öðrum. Á þennan hátt nýtist styrkur og samvinna prjónafólks málaflokknum. Reglulega hafa verið haldnir prjónahittingar þar sem fólk hefur hist og skapast hafa góðar prjónasamverustundir.
Hægt er að skila inn prjónuðum peysum á prjónakaffihittingum eða í prjónabúðina Maró, Hlíðarfót 11, 102 Reykjavík, hvenær sem er á opnunartíma verslunarinnar.
Ef spurningar vakna sendið þá vinsamlegast tölvupóst á verkefnastjórn Guls september lifsbru@landlaeknir.is
Kærar þakkir fyrir stuðninginn!

(3) Litla gula peysan | Facebook

Details

  • Start: september 11, 2025 @ 20:00
  • End: október 9, 2025 @ 23:30