Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Tölum saman

Samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins. Frá upphafi hefur áherslan verið skýr: Samtalið eigum við saman.
Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, hlustað hvert á annað og rætt spurninguna:
Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Nánari upplýsingar má finna hér: https://talasaman.is/upplysing
Hlekkur á viðburð: https://talasaman.is/
Tengiliður ábyrgðaraðila: Vigdís Jóhannsdóttir
