Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

- This event has passed.
Kyrrðarstund í Bústaðarkirkju
Kyrrðarstund verður haldin í Bústaðarkirkju þann 10. september kl. 20:00, á alþjóðadegi sjálfsvígsforvarna, þar sem skapað verður hlýlegt rými til samveru, minningar og íhugunar.
Dagskrá:
- Séra Sigríður Kristín Helgadóttir býður gesti velkomna.
- Eva Skarpaas flytur opnunarávarp og kynnir dagskrá.
- Vigfús Bjarni Albertsson og Eva Skarpaas flytja hugvekjur.
- Guðmundur Pétursson og Ragnheiður Gröndal flytja tónlist.
- Kveikt verður á kertum til minningar um ástvini.
- Kór tónlistarskóla FÍH syngur undir stjórn Unu Stefánsdóttur.
- Slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins stendur heiðursvörð.
Að kyrrðarstundinni lokinni verður boðið upp á kaffi og veitingar og gestum gefst kostur á að eiga saman rólega samverustund.
Öll hjartanlega velkomin💛
