Dagskráin í Gulum september er frá 1. september til 10. október og er viðburðadagatalið uppfært reglulega. Við hvetjum félagasamtök, stofnanir, vinnustaði, sveitarfélög og aðra áhugasama til að taka þátt og skrá viðburði í dagatalið með því að fylla út skráningarformið hér með helstu upplýsingum um viðburðinn. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að breiða út mikilvæg skilaboð um geðrækt, samtal og sjálfsvígsforvarnir. Takk fyrir.

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Tölum saman um líðan og tengsl – Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

september 10 @ 19:30 - 21:00

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fimmtudaginn 10. september verða samtökin á Patreksfirði að funda með 10. bekkingum á sunnanverðum Vestfjörðum.

Um kvöldið, er boðið til opins samtals í Patreksskóla þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.

Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.

Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.

Details

Organizer

  • Barnaheill og Geðhjálp
  • Email gudny@gedhjalp.is

Venue

  • Patreksskóli á Patreksfirði
  • Aðalstræti 53
    Patreksfjörður,450Iceland
    + Google Map